Aukaársfundir beggja sjóða hafa samþykkt sameiningu Gildis og Festu. Sjóðirnir renna saman 1. janúar 2027 og sameinaður sjóður mun heita Gildi-lífeyrissjóður.
Sameinaður sjóður verður sá næststærsti á landinu og sá fjölmennasti. Miðað við stöðu sjóðanna í árslok 2025 yrði hrein eign hans um 1.570 milljarðar króna.
Sameinaður sjóður verður með skrifstofur í Reykjavík, Reykjanesbæ, á Akranesi og á Selfossi.
Áður en sameiningin tekur gildi þarf heimild frá Samkeppniseftirlitinu. Jafnframt þurfa samþykktabreytingar vegna sameiningarinnar staðfestingu fjármála- og efnahagsráðherra að fenginni umsögn fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.
„Sameinaður sjóður hefur það markmið að vera traustur og eftirsóttur kostur til uppbyggingar lífeyrisréttinda og séreignarsparnaðar, með áherslu á öfluga þjónustu, hagkvæman rekstur, ábyrga stýringu eigna og sköpun langtímaverðmæta í þágu sjóðfélaga.“
Markmið sameiningarinnar er að bæta hag sjóðfélaga. Stjórnir og framkvæmdastjórar beggja sjóða eru sammála um að verulegur ávinningur sé af samrunanum fyrir sjóðfélaga beggja sjóða.
Sjóðirnir eru um margt sambærilegir hvað varðar sjóðfélagahópa, réttindakerfi og tryggingafræðilegar forsendur, sem auðveldar samþættingu starfseminnar.
Ekki er gert ráð fyrir fækkun starfsmanna vegna sameiningarinnar og sameinaður sjóður verður áfram með skrifstofur á fjórum stöðum.
Aukin stærð sameinaðs sjóðs skilar frekari hagkvæmni í rekstri og hlutfallslega lægri rekstrarkostnaði til lengri tíma.
Tækni, sjálfvirkni og stafrænar lausnir efla þjónustu, samhliða auknum kröfum um rekstrar- og upplýsingaöryggi.
Stærra eignasafn og aukinn slagkraftur í eignastýringu styrkja fjárhagslegar forsendur lífeyrisréttinda og séreignarsparnaðar.
Sterk fagleg geta beggja sjóða myndar breiðari þekkingargrunn og eykur tækifæri starfsfólks til sérhæfingar.
Aukið þjónustustig, persónubundin þjónusta, ráðgjöf um lífeyrismál og betra aðgengi að upplýsingum.
Sterkari staða sem öflugur langtímafjárfestir og ábyrgur þátttakandi á íslenskum fjármálamarkaði.
Mat sjóðanna með aðstoð ytri ráðgjafa, byggt á rekstrartölum þeirra fyrir árið 2025.
Stærri sjóður skapar tækifæri til að nýta fjármuni og starfskrafta betur og halda rekstrarkostnaði hlutfallslega lægri til lengri tíma. Ekki er gert ráð fyrir fækkun starfsfólks umfram það sem fyrirséð er vegna aldurstengdra starfsloka.
Ávinningurinn af lægri fjárfestingargjöldum felst einkum í betri samningskjörum og auknum stærðarafsláttum hjá erlendum stýringaraðilum.
Ávinningur sameiningar felst þó ekki eingöngu í lægri kostnaði. Sameinaður sjóður hefur sterkari samningsstöðu og betri forsendur til að nýta fjárfestingartækifæri sem oft standa aðeins stærri fjárfestum til boða.
Lykiltölur úr starfsemi Gildis og Festu í árslok 2025 og samanlagðar tölur sjóðanna, sem gefa mynd af stærð sameinaðs sjóðs.
| Árslok 2025 | ![]() |
![]() |
Samanlagt |
|---|---|---|---|
| Hrein eign til greiðslu lífeyris | 1.225,1 ma.kr. | 346,5 ma.kr. | 1.571,6 ma.kr. |
| þar af samtryggingardeild | 1.213,6 ma.kr. | 344,4 ma.kr. | 1.558,0 ma.kr. |
| þar af séreignardeild | 11,5 ma.kr. | 2,2 ma.kr. | 13,7 ma.kr. |
| Sjóðfélagar með réttindi | 285.370 | 116.382 | 401.752* |
| Sjóðfélagar sem greiddu iðgjöld 2025 | 59.474 | 20.586 | 80.060* |
| Launagreiðendur 2025 | 8.648 | 3.258 | 11.906* |
| Lífeyrisþegar | 33.328 | 13.211 | 46.539* |
| Iðgjöld 2025 | 56,3 ma.kr. | 18,8 ma.kr. | 75,1 ma.kr. |
| Lífeyrisgreiðslur 2025 | 37,5 ma.kr. | 9,3 ma.kr. | 46,8 ma.kr. |
| Hrein nafnávöxtun samtryggingardeildar 2025 | 7,1% | 5,3% | – |
| Hrein raunávöxtun samtryggingardeildar 2025 | 3,3% | 1,5% | – |
| Meðalraunávöxtun síðustu 10 ára | 3,8% | 3,4% | – |
| Rekstrarkostnaður | 1.700 m.kr. | 501 m.kr. | 2.201 m.kr. |
| Rekstrarkostnaður sem hlutfall af eignum | 0,14% | 0,15% | – |
| Eignir samtryggingardeildar í erlendri mynt | 39,5% | 38,6% | um 39% |
| Tryggingafræðileg heildarstaða | −1,8% | −2,6% | – |
| Starfsmenn | 50 | 16 | 66 |
| Stöðugildi | 47,9 | 15,1 | 63,0 |
* Einföld samlagning. Sumir sjóðfélagar eiga réttindi í báðum sjóðum og sumir launagreiðendur greiða til beggja, svo raunverulegur fjöldi í sameinuðum sjóði verður nokkru lægri.
Heimild: ársskýrslur Gildis og Festu fyrir árið 2025. Iðgjöld beggja sjóða eru að meðtöldu framlagi ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði, 2,9 ma.kr. hjá Gildi og 0,8 ma.kr. hjá Festu.
Miðað við árslok 2025 yrði sameinaður sjóður næststærsti lífeyrissjóður landsins að eignum og sá fjölmennasti. Endanleg eigna- og réttindastaða mun ráðast af ársuppgjöri sjóðanna fyrir árið 2026 og tryggingafræðilegri úttekt.
Hlutfall iðgjalda er grundvöllur nýrrar réttindatöflu sameinaðs sjóðs, sem endurspeglar réttindatöflu Gildis að ¾ hlutum og réttindatöflu Festu að ¼ hluta.
Tryggingafræðileg staða segir til um getu lífeyrissjóðs til að standa við skuldbindingar sínar gagnvart sjóðfélögum. Staða beggja sjóða var lítillega neikvæð í árslok 2025 en vel innan þeirra marka sem lög kveða á um.
Áunnin réttindi kunna að breytast vegna jöfnunar á stöðu sjóðanna en haldast að öðru leyti óbreytt við sameininguna. Jöfnunin byggir á tryggingafræðilegri úttekt og ársuppgjörum sjóðanna fyrir árið 2026. Niðurstaðan verður kynnt í aðdraganda fyrsta ársfundar sameinaðs sjóðs, sem haldinn verður fyrir lok maí 2027.
Helstu skref frá upphafi viðræðna til fyrsta ársfundar sameinaðs sjóðs.
Forsenda sameiningarinnar er að sjóðfélagar beggja sjóða eigi jafn verðmæt réttindi eftir sameininguna og fyrir hana. Sameiningin á ekki að bæta hag sjóðfélaga annars sjóðsins á kostnað hins, heldur styrkja lífeyrisréttindi sjóðfélaga beggja sjóða til framtíðar.
Allar eignir, réttindi og skuldbindingar beggja sjóða miðað við stöðu 31. desember 2026 færast í sameinaðan sjóð. Frá 1. janúar 2027 starfar hann undir nafni Gildis á grundvelli nýrra samþykkta.
Sjóðirnir og ytri endurskoðendur þeirra yfirfara matsreglur eigna svo að sömu aðferðum sé beitt í báðum sjóðum við mat eigna og skuldbindinga.
Ný réttindatafla byggir á tryggingafræðilegum forsendum sameinaðs sjóðs. Hún endurspeglar í stórum dráttum réttindatöflu Gildis að ¾ hlutum og réttindatöflu Festu að ¼ hluta, í hlutfalli við iðgjöld sjóðanna.
Ársreikningar beggja sjóða fyrir árið 2026 eru gerðir á grundvelli samræmds eignamats og lagðir fram á fyrsta ársfundi sameinaðs sjóðs. Stjórn Festu starfar áfram fram að þeim fundi og leggur þar fram ársreikning Festu.
Við gerð ársuppgjöra sjóðanna fyrir árið 2026 verður tryggingafræðileg staða þeirra metin og borin saman. Reynist munur á stöðu þeirra er hann jafnaður í þeim sjóði sem lakar stendur. Niðurstaðan verður kynnt í aðdraganda fyrsta ársfundar sameinaðs sjóðs, sem haldinn verður fyrir lok maí 2027.
Stjórnir beggja sjóða eru skipaðar að jöfnu fulltrúum launamanna og atvinnurekenda. Fulltrúar launamanna eru kosnir á ársfundi og Samtök atvinnulífsins tilnefna fulltrúa atvinnurekenda. Sameinaður sjóður mun starfa á grundvelli samþykkta Gildis, en við sameininguna verða gerðar tímabundnar breytingar svo að sjónarmið beggja sjóða komi að stjórn hans.
Fjórir eru kosnir af fulltrúum sjóðfélaga á ársfundi og fjórir tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins. Fjórir varamenn eru í stjórn Gildis.
Þrír fulltrúar launamanna eru kosnir á ársfundi og þrír fulltrúar atvinnurekenda eru tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins. Tveir varamenn eru í stjórn Festu.
Frá gildistöku sameiningar og fram að fyrsta ársfundi sameinaðs sjóðs verða tíu aðalmenn í stjórn, átta núverandi aðalmenn í stjórn Gildis ásamt formanni og varaformanni stjórnar Festu. Varamönnum mun á sama tíma fjölga úr fjórum í sex og verða þeir tveir sem bætast við valdir úr hópi núverandi aðalmanna í stjórn Festu.
Eftir fyrsta ársfund sameinaðs sjóðs mun stjórn sjóðsins aftur verða skipuð átta aðalmönnum og fjórum varamönnum.
80 fulltrúar atvinnurekenda og 80 fulltrúar stéttarfélaga.
60 fulltrúar atvinnurekenda og 60 fulltrúar stéttarfélaga.
100 fulltrúar atvinnurekenda og 100 fulltrúar stéttarfélaga. Af hvorum hópi tilnefna aðildarfélög Gildis 75 og aðildarfélög Festu 25. Skipting fulltrúa milli aðildarfélaga verður endurmetin haustið 2027 út frá vægi iðgjalda.
Sameining Gildis og Festu snertir sjóðfélaga beggja sjóða. Veldu núverandi sjóðinn þinn til að kynna þér hvað sameiningin þýðir fyrir þig.
Áttu réttindi í báðum sjóðum? Þau flytjast öll í sameinaðan sjóð og réttindi úr hvorum sjóði um sig verða varðveitt sérstaklega.
Réttindi sem þú hefur áunnið þér hjá Gildi haldast óbreytt, ef frá eru talin áhrif af jöfnun á mögulegum mun á stöðu sjóðanna.
Frá 1. janúar 2027 ávinnur þú þér réttindi samkvæmt nýrri réttindatöflu sameinaðs sjóðs. Hún byggir að ¾ hlutum á réttindatöflu Gildis og að ¼ hluta á réttindatöflu Festu, í hlutfalli við iðgjöld sjóðanna, svo ávinnsla nýrra réttinda getur breyst lítillega.
Þú skráir þig áfram inn á Mínar síður á gildi.is og sérð þar öll þín réttindi. Ef þú ert með sjóðfélagalán hjá Gildi hefur sameiningin engin áhrif á skilmála þess eða afborganir.
Lífeyrisgreiðslur halda áfram með sama hætti og áður. Bæði Gildi og Festa greiða út lífeyri í gegnum Greiðslustofu lífeyrissjóða og því verður engin breyting á því hvernig lífeyrir er greiddur út við sameininguna.
Ef lækka þarf réttindi í öðrum sjóðnum til að jafna stöðu sjóðanna verður lífeyrir þeirra sem fá greitt úr þeim sjóði ekki lækkaður í krónum talið. Í staðinn hætta greiðslurnar tímabundið að hækka með verðlagi frá 1. september 2027, þar til uppsöfnuð verðbólga nemur lækkuninni. Eftir það hækka þær aftur með verðlagi eins og áður.
Launagreiðendur sem greiða nú þegar til Gildis halda því áfram með sama hætti.
Frá 1. janúar 2027 tekur sameinaður sjóður einnig við iðgjöldum sem áður voru greidd til Festu.
Innstæður þínar í séreign verða óbreyttar og framboð séreignarleiða hjá Gildi tekur ekki breytingum vegna sameiningarinnar.
Séreign sjóðfélaga beggja sjóða verður í séreignarleiðum sameinaðs sjóðs. Eignasöfn leiðanna stækka við það, sem getur styrkt eignastýringu þeirra til lengri tíma.
Réttindi sem þú hefur áunnið þér hjá Festu flytjast í sameinaðan sjóð og verða varðveitt sérstaklega. Þau haldast óbreytt, ef frá eru talin áhrif af jöfnun á mögulegum mun á stöðu sjóðanna.
Frá 1. janúar 2027 ávinnur þú þér réttindi samkvæmt nýrri réttindatöflu sameinaðs sjóðs. Hún byggir að ¼ hluta á réttindatöflu Festu og að ¾ hlutum á réttindatöflu Gildis, í hlutfalli við iðgjöld sjóðanna, svo ávinnsla nýrra réttinda getur breyst lítillega.
Eftir sameiningu verða allar upplýsingar um stöðu þína aðgengilegar á Mínum síðum á gildi.is. Ef þú ert með sjóðfélagalán hjá Festu hefur sameiningin engin áhrif á skilmála þess eða afborganir.
Lífeyrisgreiðslur halda áfram með sama hætti og áður. Bæði Festa og Gildi greiða út lífeyri í gegnum Greiðslustofu lífeyrissjóða og því verður engin breyting á því hvernig lífeyrir er greiddur út við sameininguna.
Ef lækka þarf réttindi í öðrum sjóðnum til að jafna stöðu sjóðanna verður lífeyrir þeirra sem fá greitt úr þeim sjóði ekki lækkaður í krónum talið. Í staðinn hætta greiðslurnar tímabundið að hækka með verðlagi frá 1. september 2027, þar til uppsöfnuð verðbólga nemur lækkuninni. Eftir það hækka þær aftur með verðlagi eins og áður.
Fram að gildistöku sameiningarinnar eru iðgjöld greidd til Festu eins og áður.
Frá 1. janúar 2027 tekur sameinaður sjóður við öllum iðgjöldum sem nú eru greidd til Festu.
Innstæður þínar í séreign verða óbreyttar við sameininguna.
Sparnaðarleiðir Festu færast í séreignarleiðir sameinaðs sjóðs, eins og sýnt er hér fyrir neðan.
Á næstu mánuðum eftir sameiningu er miðað við að Sparnaðarleið 1 sameinist Eign – 20/80 og Sparnaðarleið 2 sameinist Eign – 50/50 í sameinuðum sjóði.
Áður en þær breytingar koma til framkvæmda verður þér gerð nánari grein fyrir hvað í þeim felst og hvaða fleiri valkostir standa þér til boða.
Sameinaður sjóður verður áfram með skrifstofur á öllum stöðum þar sem sjóðirnir starfa í dag.
Finnur þú ekki svarið? Hafðu samband við Gildi í síma 515 4700 eða Festu í síma 420 2100.